top of page
Fannstu fjöður?

Á fuglavefnum finnurðu myndir af öllum helstu fuglum á Íslandi, ásamt myndum af eggjunum þeirra og fleira. Hversu marga þekkir þú? Smelltu hér. 

Algjör sveppur

Sveppaheitin eru skemmtileg og sum skrítin. Farðu inn á floraislands.is til að skoða fleiri sveppi, eins og til dæmis kornsúrupússryð. Og mundu að borða ekki sveppi sem þú þekkir ekki. 

Fiskarnir

Prófaðirðu að teikna myndir eftir fiskaheitunum í bókinni Komdu út? Hér er mynd af fiskunum eins og þeir líta úr í raun og veru. Og ef þú smellir hér þá geturðu skoðað fullt af allskonar fiskum. 

Hagmýs lifa villtar í íslenskri náttúru. Hér má sjá myndband af hagamús að fá sér að borða. 

bottom of page